Í september verða laus til ráðstöfunar allt að 8 hönnunarrými hér í Toppstöðinni. Nú er kjörið tækifæri fyrir frumkvöðla á sviði hönnunar til að byggja upp framtíð sína í skapandi umhverfi Toppstöðvarinnar. Við hvetjum framsækna hönnuði og sprotafyrirtæki í hönnun til að sækja um aðstöðu. Jafnframt bjóðum við markaðs- og viðskiptafólk sem áhuga hefur á að starfa að nýsköpunarverkefnum velkomið til samstarfs. Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. september næstkomandi. Stjórn Toppstöðvarinnar mun yfirfara umsóknir og öllum verður svarað. Hér er umsóknareyðublaðið UmsoknareydubladToppstod . Umsóknum skal skilað inn rafrænt til toppstodin@gmail.com.
Leikfangafyrirtækið Fafu var stofnað í júní 2009. Framgangur fyrirtækisins hefur verið talsverður og í dag hannar Fafu og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn úr umhverfisvænum og siðgæðisvottuðum hráefnum. Í júlí síðastliðnum steig fyrirtækið næsta skref og flutti sig yfir í viðskiptamiðað umhverfi Klaksins, en í Toppstöðinni hefur verið lögð áhersla á skapandi hluta vöruþróunarferlisins.
Fafu var fyrst til að flytja inn í Toppstöðina í september 2009. Á meðan á dvölinni í Toppstöðinni stóð unnu þær Þórunn og Hulda, stofnendur Fafu, óeigingjarnt starf í þágu Toppstöðvarinnar, ásamt því að byggja markvisst upp fyrirtækið sitt.
Toppstöðin þakkar Huldu og Þórunni í Fafu ánægjulegt samstarf og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Valgerður Helga Schopka hefur verið ráðin sem verkefnastjóri Toppstöðvarinnar og mun hún leiða uppbyggingu og starf stöðvarinnar á komandi mánuðum.
Valgerður nam búninga- og tískuhönnun á Ítalíu og starfaði í 8 ár sem innkaupamaður undirfatadeildar Hagkaupa. Þar stýrði hún m.a. innkaupum, vöruþróun og framleiðslu fyrir deildina. Núna á dögunum, lauk Valgerður meistaranámi í verkefnastjórnun MPM af Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Hún var verkefnisstjóri Fatahönnunarfélags Íslands á HönnunarMarsi 2010 og kosin formaður Fatahönnunarfélagsins í framhaldi af því. Hún á einnig sæti varamanns í MPM-félaginu. Í lokaverkefni sínu í MPM náminu rannsakaði hún aðferðir við vöruþróun hjá íslenskum fatahönnunarfyrirtækjum.
Valgerður er mikil áhugamanneskja um nýsköpun og vöruþróun og er mikill fengur fyrir stöðina að fá han a til starfa.Valgerður mun hefja störf að hluta í júlí en verður frá og með ágúst í fullu starfi. Toppstöðin býður hana velkomna til starfa.
Föstudagserindi Toppstöðvarinnar: Siðblinda
Nk. föstudag kl. 12 mun Nanna Briem Geðlæknir fjalla um siðblindu, einkenni hennar og hvernig hún getur birst í fyrirtækjum og viðskiptalífinu. Erindið verður um 20 mínútur og að því loknu verða umræður og fyrirspurnir.
Allir velkomnir.
Umsóknafrestur um starf verkefnastjóra hjá Toppstöðinni rann út þann 20. Maí. Tæplega 40 umsóknir bárust um starfið. Stjórn Toppstöðvarinnar vinnur að úrvinnslu umsókna og haft verður samband við umsækjendur við fyrsta hentugleika.
Toppstöðin leitar að verkefnisstjóra til að leiða daglega starfsemi og uppbyggingu stöðvarinnar.
Helstu kröfur:
Frumkvæði og kraftur til knýjandi verka.
Brennandi áhugi á nýsköpun og hönnun. Menntun á sviði hönnunar er kostur.
- Mjög gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku. Önnur tungumál eru kostur.
- Hæfni í samskiptum og reynsla af verkefnasstjórn.
- Góð og almenn tölvuþekking,
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Þekking á gerð fjárhagsáætlana.
Starfskjör: Samkomulag
Vinnutími: Samkomulag
Um er að ræða frumkvöðlastarf á vegurm starfsorku og ert er ráð fyrir að ráða fólk af atvinnuleysisskrá (8gr.) í Vinnumarkaðsúrræði (skv. reglugerð 012/2009)
Umsóknir og ferilskrár sendist á netfang Toppstöðvarinnar toppstodin@gmail.com fyrir 20. maí.
Stefnumót með Einkaleyfastofu Næstkomandi föstudag munu þær Ásdís Kristmundsdóttir og Þóranna Gunnarsdóttir frá Einkaleyfastofu standa fyrir kynningu á skráningu einkaleyfa, hönnunarvernd og vörumerkjaskráningu. Við hvetjum hönnuði og frumkvöðla til að mæta og kynna sér betur þá þjónustu og aðstoð sem Einkaleyfastofa getur veitt aðilum úr hönnunar- og framleiðslugeiranum á leið þeirra á markað með nýjar vörur. Að loknu erindinu verða umræður og fyrirspurnir. Allir velkomnir
Frá hugmynd í heimssölu
Steinn Sigurðsson verður í Toppstöðinni föstudaginn 16. apríl kl. 12.00 og segir frá þróunarferli hugmyndar yfir í lífvænlega vöru á markaði, og af þeim fjölmörgu ljónum sem á vegi frumkvöðulsins verða. Steinn á langan hönnunarferil að baki og hafa ýmis verk hans verið smíðuð, m.a. hefur Steinn komið eigin hugmynd að smáhlutagildru fyrir ryksugur alla leið í magnframleiðslu og alþjóðlega sölu. Umræður og spurningar á eftir. Allir velkomnir.
Næsta föstudag kl. 12 fræðir Haraldur Aikmann frá PM endurvinnslu áhugasama um endurunnið plast og vinnslumöguleika á sviði vöruframleiðslu. PM endurvinnsla er ungt fyrirtæki sem endurvinnur plast úr íslenskum sjávarútvegi og landbúnaði . Í dag er meginhluti framleiðslu fyrirtækisins fluttur til vinnslu erlendis og er því sóknarfæri fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki að nýta sér þessa nýju íslensku afurð. Við hvetjum hönnuði og frumkvöðla sérstaklega til að mæta og fá hugmyndir að nýjum efnivið í framtíðar verkefni. Erindið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.