Vetur 2011 – 2012
Íslensk framleiðsla – hráefnið, framboð og vinnslumöguleikar
Hádegiserindaröð Toppstöðvarinnar og Samtaka iðnaðarins veturinn 2011 – 2012
Toppstöðin og Samtök iðnaðarins hafa tekið höndum saman og standa fyrir erindaröð um íslenska framleiðslu og vinnslumöguleika. Í hverjum mánuði verður tekið fyrir eitt hráefni s.s. málmur, gler og timbur. Sérfræðingur úr framleiðsluiðnaði varpar ljósi á hráefnið, eiginleika þess, framboð til framtíðar, vinnslumöguleika, horfur og þróun. Í lok hvers erindis gefst svigrúm til fyrirspurna og umræðu. Markmiðið með erindaröðinni er að efla vitund um innlenda framleiðslumöguleika og stuðla að þverfaglegu samstarfi. Hönnuðir og iðnaðarmenn eru sérstaklega hvattir til að koma.
Hádegiserindaröðin verður haldin í Toppstöðinni í Elliðaárdal þriðja miðvikudag hvers mánaðar kl. 12.10 – 13.00 og er öllum opin.
Hvert erindi verður auglýst nánar síðar.
Fylgist með á fésbókarsíðu Toppstöðvarinnar og á netinu www.toppstodin.is .